13. maí 2025
12. nóvember 2021
Ársskýrsla HMS 2020
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Ársskýrsla HMS fyrir árið 2020 hefur nú verið birt. Í þessari fyrstu ársskýrslu HMS er gerð grein fyrir fjölbreyttri starfsemi stofnunarinnar á fyrsta starfsári hennar. Í henni eru einnig birtir ársreikningar HMS, Húsnæðissjóðs og Leigufélagsins Bríet.
Ársskýrsla HMS fyrir árið 2020 hefur nú verið birt. Í þessari fyrstu ársskýrslu HMS er gerð grein fyrir fjölbreyttri starfsemi stofnunarinnar á fyrsta starfsári hennar. Í henni eru einnig birtir ársreikningar HMS, Húsnæðissjóðs og Leigufélagsins Bríet.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun tók til starfa 1. janúar 2020 með sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar. Starfsemi HMS gekk afar vel á árinu 2020 þrátt fyrir þá miklu áskorun sem fólst í sameiningu ríkisstofnananna tveggja. Starfsáherslur hinnar sameinuðu stofnunar fyrir árið 2020 voru eftirfarandi:
- Skipulagt samstarf við hagaðila og aukin samræming á sviði brunavarna og byggingaeftirlits.
- Stuðla að uppbyggingu og aðgengi að hagkvæmu og heilnæmu húsnæði.
- Innleiðing stafrænnar stjórnsýslu og samræmd upplýsingagjöf um húsnæðis- og mannvirkjamál.
- Áhersla á árangursríka fyrirtækjamenningu, heilsusamlegt umhverfi og ábyrgan rekstur.
Þá skilaði rekstur HMS jákvæðum rekstrarafgangi árið 2020 að fjárhæð 241 milljón kr. Umfangsmiklar áherslubreytingar í rekstri HMS í kjölfar sameiningarinnar skiluðu auk þess 20% hagræðingu fyrir ríkissjóð eða 551 milljón kr. Með aukinni skilvirkni í rekstri og samlegð var HMS unnt að taka við nýjum verkefnum án þess að fá viðbótarframlag vegna þeirra á fjárlögum.
Stóra verkefni HMS er að stuðla að heillavænlegri framþróun íslensks samfélags til framtíðar. Þar skipa loftslagsmálin stóran sess, einföldun regluverks til að bæta starfsumhverfi byggingariðnaðarins ásamt bættri gagnaöflun og áætlanagerð til að tryggja aukinn stöðugleika á húsnæðismarkaði. Við erum rétt að byrja.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS