6. október 2026
7. október 2026
Arkitektafélag Íslands hefur göngu nýrrar fræðsluraðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Arkitektafélag Íslands hefur göngu nýrrar fræðsluraðar um arkitektúr og gæði byggingarlistar með fyrsta viðburðinum 8. október.
- Fimm opin erindi verða haldin yfir veturinn 2026–2027 þar sem fjallað verður um fegurð, umbreytingu, nýtingu, samfélag og öndun.
- Auður Hreiðarsdóttir frá Esju Arkitektum flytur fyrsta erindið og fjallar meðal annars um Landsfjórðungahús, sem hefur hlotið þrjá styrki úr Aski mannvirkjarannsóknarsjóði.
Arkitektafélag Íslands hefur göngu nýrrar fræðsluraðar um arkitektúr, gæði byggingarlistar og þau grunngildi sem móta gott manngert umhverfi. Fyrsti viðburðurinn fer fram á Parketinu í Grósku fimmtudaginn 8. október 2026 kl. 17–19 og ber yfirskriftina Samfélag.
Fimm opin erindi yfir veturinn
Fræðsluröðin, Erindi um arkitektúr, samanstendur af fimm opnum viðburðum sem haldnir verða yfir veturinn 2026–2027. Markmiðið er að dýpka faglega umræðu og standa vörð um gæði byggingarlistar. Á viðburðunum verður fjallað um fimm þemu: fegurð, umbreytingu, nýtingu, samfélag og öndun.
Askverkefnið Landsfjórðungahús
Auður Hreiðarsdóttir frá Esju Arkitektum flytur fyrsta erindið. Hún mun meðal annars fjalla um Landsfjórðungahús, verkefni sem hefur hlotið þrjá styrki úr Aski mannvirkjarannsóknarsjóði.
Nánar um verkefnin má finna hér að neðan:
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




