3. júní 2026
3. júní 2026
Álit HMS um umhverfismat Sundabrautar hefur verið gefið út
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur gefið út álit um umhverfismat fyrirhugaðar Sundabrautar á milli Sæbrautar og Kjalarness. Vegagerðin er framkvæmdaraðili Sundabrautar og ber ábyrgð á umhverfismati framkvæmdarinnar en verkefnið unnið í samráði við Reykjavíkurborg.
Lagning Sundabrautar er umfangsmikið og flókið verkefni. Umhverfismat framkvæmdarinnar er viðamikið og felur í sér úrlausn fjölda ólíkra álitaefna. Vegagerðin hefur aflað umfangsmikilla gagna til að upplýsa um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar og fyrir liggur fjöldi umsagna um málið frá einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum og öðrum hagsmunaaðilum.
Að mati Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar ná framlögð gögn, auk umsagna og frekari upplýsinga sem Vegagerðin lagði fram að loknum kynningartíma, að varpa fullnægjandi ljósi á umhverfisáhrif framkvæmdarinnar.
Eins og gefur að skilja þegar svo umfangsmikil framkvæmd á í hlut er uppi óvissa varðandi tiltekna þætti sem voru til umfjöllunar í umhverfismatinu. Í sumum tilvikum eru áhrif háð frekari útfærslu og hönnun sem mun eiga sér stað á síðari stigum undirbúnings framkvæmdarinnar en í öðrum tilvikum hefur umhverfismatið dregið fram þætti sem þarf að rannsaka betur. Nánari skoðun á ákveðnum þáttum er því nauðsynleg samhliða frekari hönnun á framkvæmdinni og undirbúning á skipulagi í samvinnu við Reykjavíkurborg.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




