30. mars 2021

Aldrei fleiri nemendur í Brunamálaskólanum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Frá stofnun nýs brunavarnasviðs HMS hafa aldrei fleiri nemendur stundað nám við Brunamálaskólann. Hátt í 600 manns hafa lokið námi, eða eru skráðir í námskeið á vormisseri, frá því að sviðið tók til starfa á Sauðárkróki þann 1. október sl. Í nemendahópi eru einnig hlutfallslega fleiri konur en áður og er það mikið fagnaðarefni. 

En hvað er Brunamálaskólinn? 

Brunamálaskólinn er skóli ætlaður slökkviliðsmönnum og þar með talið slökkviliðsstjórum og eldvarnaeftirlitsmönnum. HMS starfrækir skólann sem hefur umsjón með menntun slökkviliðsmanna, bæði bóklegri og verklegri, og fræðslu þeirra í starfi. HMS fól Brunavörnum Árnessýslu með sérstökum samningi að sjá um nám eldvarnareftirlitsmanna og hefur kennsla gengið vonum framar. HMS á einnig í samstarfi með stærstu slökkviliðum landsins með umsjón atvinnumannanáms sem stýrt er af Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

Námið sjálft 

Með því að sækja nám við Brunamálaskólann fær nemandinn góða þekkingu á starfi slökkviliða, en bæði er hægt að sækja sér menntun til að starfa sem atvinnuslökkviliðsmaður og sem hlutastarfandi slökkviliðsmaður. Brunamálaskólinn bíður einnig upp á stjórnendanám og nám fyrir slökkviliðsstjóra hlutastarfandi slökkviliðs. 

Covid tækifæri 

Bóklegt nám fer fram með rafrænum hætti vegna ástandsins í þjóðfélaginu og hefur það gefið góða raun. Hvert námskeið rúmar fleiri en hin hefðbundna kennslustofa gerir og líflegar umræður hafa skapast. Þar sem vel hefur tekist til að halda námskeiðið með rafrænum hætti munum við halda því áfram, enda tilvalið þar sem nemendur eru staðsettir um land allt. 

Brunavarnasvið HMS hlakkar mikið til að halda áfram að þróa Brunamálaskólann og bjóða upp á öflugt nám fyrir slökkviliðsmenn- og konur.  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS