29. desember 2021

Aldrei fleiri íbúðir selst yfir ásettu verði en í nóvember

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Ekkert lát virðist vera á þeirri eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði sem verið hefur síðustu misserin og virðist enn vera með mesta móti. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hélt áfram að hækka í nóvember sé tekið mið af vísitölu söluverðs HMS. Samkvæmt vísitölunni hækkaði íbúðaverð frá fyrri mánuði að jafnaði um 0,8% á landinu öllu þar sem íbúðir í fjölbýli lækkuðu um 0,9% en sérbýli hækkuðu hins vegar um 2,3% eftir að mælst hafði lækkun á verði sérbýla í október.

Á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 15,4% á landinu öllu þar sem hækkunin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið 15,8%. Sérbýlin á höfuðborgarsvæðinu hafa hækkað um 18,4% á meðan íbúðir í fjölbýli hafa hækkað um 15,1%. Á landsbyggðinni hafa sérbýlin hækkað um 15,6% en íbúðir í fjölbýli hækkað um 11,8%.

Vísitala ásetts verðs sem HMS heldur úti gefur til kynna að ásett verð á höfuðborgarsvæðinu það sem af er desember hafi verið 1,1 prósentustigi hærra en í nóvember fyrir íbúðir í fjölbýli og 1,9 prósentustigum hærra fyrir sérbýli[1]. Það eru því líkur á að söluverð íbúða hafi haldið áfram að hækka í desember.

Enn eitt metið féll á höfuðborgarsvæðinu í nóvember þegar 43,6% allra seldra íbúða seldust yfir ásettu verði í mánuðinum samanborið við 41,1% í október. Til samanburðar þá var hlutfallið á bilinu 7-15% á árunum 2018 og 2019. Hjá nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins var met einnig slegið þegar 26,9% íbúða seldust yfir ásettu verði en hlutfallið var tæp 17% í október og rúm 21% í september.

[1] Vísitölu HMS fyrir ásett verð er ætlað að lýsa þróun á auglýstu verði íbúða sem settar eru á sölu í viðkomandi mánuði.

Hækkun íbúðaverðs hefur að miklu leyti verið drifin áfram af mikilli eftirspurn undanfarin misseri sem hefur orðið til þess að íbúðum á söluskrá hefur fækkað hratt. Núverandi framboð íbúða sem skráðar eru til sölu er það lægsta sem mælst hefur og heldur þeim áfram að fækka. Samkvæmt síðustu mánaðarskýrslu HMS voru 626 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu þann 7. desember sl. en samkvæmt nýjustu tölum frá 25. desember voru þær 519 sem er samdráttur uppá 17,1% á 18 dögum. Framboð íbúða er nú aðeins 23,5% af því sem það var í lok maí 2020. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og annars staðar á landsbyggðinni hefur samdrátturinn verið mun minni yfir sama tímabil en þó mælist hann 4-5% á aðeins 18 dögum. Það er því ljóst að eftirspurn eftir íbúðahúsnæði er enn með mesta móti. Því skal þó haldið til haga að samdrátturinn undanfarna daga gæti verið að hluta til árstíðabundinn þar sem fjöldi auglýstra íbúða á það til að dragast saman þessum árstíma.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS