4. mars 2026

Álagningarseðlar fyrir fasteignagjöld ársins 2026 hafa verið birtir

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Flest sveitarfélög á landinu hafa lokið vinnu við álagningu fasteignagjalda ársins 2026 og álagningarseðlar hafa verið birtir á Ísland.is
  • Flest sveitarfélögin eru með fyrsta gjalddaga í janúar, febrúar eða mars
  • Borgað þegar hent er (BÞHE) hringrásarhagkerfi úrgangsstjórnunar hefur verið innleitt hjá meirihluta sveitarfélaga

Eigendur fasteigna í flestum sveitarfélögum landsins eiga nú að geta nálgast álagningarseðla fyrir fasteignagjöld á Mínum síðum á Ísland.is. Á álagningarseðlunum má finna sundurliðun á fasteignagjöldunum, en þau innihalda öll gjöld sem lögð eru á fasteignirnar og taka mið af fasteignamati.

Í byrjun hvers árs ber sveitarfélögum að leggja á fasteignaskatt og þjónustugjöld á allar fasteignir sem metnar eru í fasteignamati 31. desember fyrra árs.  HMS heldur utan um og rekur álagningakerfi fasteignagjalda fyrir sveitarfélögin og þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um fasteignamat og skráningu fasteigna.

 

Álagn­inga­kerfi fast­eigna­gjalda er nýtt til að leggja á gjöld vegna sorp­hirðu

Meirihluti sveitarfélaga hefur innleitt sorpferilinn Borgað þegar hent er (BÞHE) sem Samband íslenskra sveitarfélaga innleiddi í samráði við stefnu Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytisins og gengur út á að innheimt er eftir magni og tegund úrgangs í stað fasts gjalds. Verkefnið tengist innleiðingu Evróputilskipunar um bætta úrgangsstjórnun, sem leiddi til lagabreytinga á árinu 2023 þegar hin svokölluðu Hringrásarlög tóku gildi hér á Íslandi. Nánari upplýsingar um Hringrásarlögin má finna á heimasíðu Umhverfis- og orkustofnunar.

Innleiðing á BÞHE hófst árið 2023 og hefur gengið vel með samstarfi HMS, Sambands íslenskra sveitarfélaga og annarra sérfræðinga sem komið hafa að verkefninu. Hins vegar hefur innleiðingin í einhverjum tilvikum hægt á vinnu við að klára álagningu fasteignagjalda.

Alls hafa 38 sveitarfélög, þar af þrjú á þessu ári, innleitt hraðalinn hjá sér og vonir standa til að fleiri sveitarfélög innleiði hann fljótlega.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS