4. maí 2026
6. maí 2026
Flest sveitarfélög hafa lokið álagningu fasteignagjalda
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
• 59 sveitarfélög af 62 hafa lokið upphafsálagningu fasteignagjalda 2026 og birt álagningarseðla á Ísland.is
• Sveitarfélögin vinna nú að breytingum á álagningu vegna eigendaskipta, nýrra lóða og fasteigna sem færast upp á hærra byggingastig/matstig
• Í byrjun júní geta sveitarfélög bæði áætlað álagningu vegna fasteignamats 2027 og endurreiknað afslætti af fasteignaskatti
Alls hafa 59 sveitarfélög lokið álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026 og birt álagningarseðla á Mínum síðum á Ísland.is. Þrjú sveitarfélög eiga þó enn eftir að ljúka álagningu, en þar eru gjalddagar síðar á árinu.
Sveitarfélög vinna að breytingum á fyrri álagningum og eru að taka inn nýja eigendur/gjaldendur á eignum sem hafa gengið kaupum og sölum frá áramótum. Eins eru þau að leggja á fasteignamat nýrra lóða sem stofnaðar hafa verið frá áramótum og á húsmat á fasteignum sem eru að koma inn á fokheldi eða hærra byggingastigi/matstigi.
Þegar HMS birtir fasteignamat fyrir árið 2027 í byrjun júní geta sveitarfélög gert áætlunarálagningar í álagningakerfi fasteignagjalda og metið áhrif mismunandi álagningarprósenta og gjalda við gerð fjárhagsáætlana fyrir árið 2027. Á sama tíma geta sveitarfélög sem veita afslátt af fasteignaskatti endurreiknað afslætti út frá nýjum tekjuupplýsingum þegar Skatturinn birtir álagningu opinberra gjalda fyrir árið 2026.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




