15. maí 2025
30. janúar 2024
Akraneskaupstaður staðfestir húsnæðisáætlun fyrir árið 2024
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Spáð er að íbúum á Akranesi fjölgi um rúmlega 900 manns eða um 10% á næstu 5 árum.
- Fjöldi íbúða í byggingu í dag er í takt við fólksfjölgun í sveitarfélaginu.
- Akraneskaupstaður ætlar að skapa skilyrði svo mögulegt verði að byggja 1.425 íbúðir á Akranesi á næstu 5 árum.
Akraneskaupstaður hefur staðfest endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2024. Samkvæmt miðspá um mannfjöldaþróun þá áætlar sveitarfélagið að mannfjöldi aukist um 21,9% næstu 10 árin.
Samkvæmt húsnæðisáætluninni er áætlað að þörf verði fyrir um 79 íbúðir á ári, 395 íbúðir næstu 5 ár og 840 íbúðir næstu 10 ár. Frá árinu 2021 hefur fjöldi íbúa í sveitarfélaginu fjölgað um rúm 4%.
Í talningu HMS voru 299 íbúðir í byggingu í september 2023 sem var fjölgun um nærri 10% frá mars talningunni sama ár þar sem taldar voru 280 íbúðir í byggingu.
Fjöldi íbúða í byggingu er í takt við áætlaða íbúðaþörf samkvæmt mannfjöldaspá húsnæðisáætlunar.
Markmið sveitarfélagsins er að fjölga lóðum fyrir allar tegundir íbúða s.s. einbýli, par/raðhús og fjölbýlishús. Markmiðið er að mæta þörf í öllum tegundum íbúða á næstu árum og er stefnan að viðhalda núverandi hlutfalli milli sérbýla og fjölbýla til lengri tíma. Akraneskaupstaður hefur nú skipulagt lóðir fyrir 2.207 íbúðir. Á næstu 5 árum stefnir sveitarfélagið á að skapa skilyrði til að úthluta byggingarhæfum lóðum fyrir allt að 1.425 íbúðir svo lóðaframboð mæti vel áætlaðri íbúðaþörf.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS