11. október 2024

Áformað að 10 nýjar leiguíbúðir verði byggðar á Hvammstanga

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húnaþing vestra fyrir hönd Brákar íbúðafélags hses. hefur fengið samþykkt veitingu stofnframlaga frá ríki og sveitarfélagi til byggingar á átta íbúða fjölbýlishúsi á Hvammstanga. Um verður að ræða íbúðir sem eru frá 60 til 90 fermetrar að stærð með einu til þremur svefnherbergjum og verða þær leigðar út fyrir tekju- og eignarminni heimili.

Brák íbúðafélag hses. sem er húsnæðissjálfseignarstofnun mun halda utan um byggingu og rekstur íbúðanna. Brák var stofnuð árið 2022 af sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að ná fram stærðarhagkvæmni í uppbyggingu og rekstri leiguíbúða. Í dag eru 32 sveitarfélög með aðild að Brák.

Brák og Húnaþing vestra auglýsa nú eftir byggingaraðilum til samstarfs um byggingu íbúðanna. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggðrar byggðar.

Hvað eru stofn­fram­lög?

Ríki og sveitarfélög veita stofnframlög til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili um allt land. Stofnframlögin eru stuðningur í formi eigin fjár, en markmið þeirra er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta þannig húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila.

Með uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða stefnir ríkið á að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna, líkt og kveðið er á um í lögum um almennar íbúðir.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS