7. maí 2025
12. mars 2020
Afgreiðslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar lokað vegna útbreiðslu COVID-19
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Due to the COVID-19 virus our offices are closed. Please see English text below.
Due to the COVID-19 virus our offices are closed. Please see English text below.
Vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar verður afgreiðslu HMS að Borgartúni 21 í Reykjavík og Ártorgi 1 á Sauðárkróki lokað í ótilgreindan tíma frá og með föstudeginum 13. mars 2020. Önnur starfsemi er óbreytt. Útsending greiðsluseðla vegna lána og útborgun húsnæðisbóta verða með hefðbundnum hætti. Þurfi viðskiptavinir að koma gögnum til stofnunarinnar bendum við á póstkassa okkar sem er staðsettur í anddyri aðalinngangs hússins.
Hægt verður að hafa samband við HMS í gegnum stafrænar þjónustuleiðir á meðan lokun afgreiðslunnar stendur og hér má sjá yfirlit yfir helstu samskiptaleiðir.
Mínar síður:
Á mínum síðum má sækja rafrænt um húsnæðisbætur og fylgjast með stöðu umsókna. Einnig má þar finna lánayfirlit og sjá stöðu lána ásamt því að hægt er sækja um starfsleyfi og löggildingar. Til að komast á Mínar síður þarf íslykil eða rafræn skilríki.
Þjónustuver HMS:
Hægt er að ná í þjónustuver í gegnum síma 440-6400 á opnunartíma. Þjónustuver veitir aðstoð til viðskiptavina og upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar. Opnunartími er frá klukkan 09:00 – 15:30 alla virka daga nema föstudaga frá 09:15 – 15:30.
Netfang
Hægt er að senda okkur tölvupóst á netfangið hms@hms.is og er öllum fyrirspurnum svarað eins fljótt og auðið er.
Heimasíða hms.is:
Á heimasíðu okkar má finna upplýsingar um starfsemi HMS ásamt mikilvægum tilkynningum er varða þjónustu við viðskiptavini.
Við leggjum áherslu á að tryggja gott þjónustustig þrátt fyrir þessar aðstæður en biðjum viðskiptavini velvirðingar á þeim óþægindum sem fyrirkomulagið kann að valda.
English:
Due to the COVID-19 virus our offices are closed.
Due to the spread of the COVID-19 virus, HMS’s offices at Borgartún 21 in Reykjavik and Ártorg 1 in Sauðárkrókur will be closed for an unspecified time as of Friday 13 March 2020. Other operations are unchanged. Housing benefits will be payed out as normal and customers can pay monthly payments of loans in banks or through online banking.
Customers can find information on “Mínar Síður” (My pages) on www.hms.is, where you can apply for housing benefits, authorizations, legaliations and read messages regarding your applications.
Our phones are open from Monday to Thursday from 09:00 – 15:30 and Fridays from 09:15 – 15:30 and you can also send us an email to hms@hms.is .
During these special circumstances we focus on maintaining our current level of services and apologize for any inconvenience this may cause.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS