20. júní 2023

Mæta vaxandi húsnæðisþörf með auknum framlögum til íbúðabygginga

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS stóð fyrir kynningarfundi í dag þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra kynnti uppbyggingaráform á íbúðum fyrir tekju- og eignaminni hópa. Þá tilkynnti hann einnig um breytingar á hlutdeildarlánum fyrir fyrstu kaupendur sem rýmka möguleika fólks til að nýta sér lánin. Hlutdeildarlán eru lán sem veitt eru sem hluti af eigin fé íbúðarkaupa. Lánin eru vaxtar- og afborgunarlaus en eru greidd upp í samræmi við markaðsverð þegar íbúðin er seld.

Einnig var tilkynnt um úthlutun stofnframlaga en þau hafa verið veitt til rúmlega þrjú þúsund íbúða þar sem heildarframlög hafa verið um 19,4 milljarðar. Á meðal stærstu uppbyggingaraðila í almenna íbúðakerfinu og viðtakandi stofnframlaga er Bjarg íbúðafélag sem er á vegum ASÍ og BSRB. Eitt helsta markmiðið með setningu laga um almennar íbúðir var að stuðla að viðráðanlegri leigu fyrir tekju- og eignaminni þar sem leigufjárhæð fer að jafnaði ekki umfram 25% af tekjum leigjendahópsins. Nú munu á næstu þremur árum bætast við 2.800 íbúðir til viðbótar, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar.

Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, ávarpaði fundinn í dag og lýsti sjónarhorni sveitarfélaganna vegna uppbyggingar íbúða á viðráðanlegu verði og hvaða þýðingu þessi stuðningskerfi hafa fyrir sveitarfélögin. Þá fór Elmar Erlendsson, sviðsstjóri lánasviðs HMS, yfir fjölgun leiguíbúða á viðráðanlegu verði.

 Í nýrri reglugerð ráðherra um hlutdeildarlán er búið að uppfæra hámarksverð íbúða, endurskoða verðflokka sveitarfélaga, hækka tekjumörk lántaka og efla afgreiðslu umsókna. Einnig verða hlutdeildarlán nú framvegis veitt mánaðarlega en ekki annan hvern mánuð.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS