30. maí 2024

Áberandi fjölgun kaupsamninga í nágrenni höfuðborgarsvæðisins á fyrsta ársfjórðungi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs fjölgaði kaupsamningum um 29% á öllu landinu samanborið við fyrsta ársfjórðung í fyrra
  • Tæplega 400 fleiri kaupsamningar voru gerðir á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu borið saman við sama tíma 2023
  • Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins fjölgaði kaupsamningum á fyrstu þremur mánuðum ársins um rúmlega helming samanborið við fyrra ár

Kaup­samn­ing­ar á fyrsta árs­fjórð­ungi 29% fleiri í ár

Heildarfjöldi kaupsamninga á fyrstu þremur mánuðum ársins voru 2.691 talsins, eða 29 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Kaupsamningarnir á landinu voru álíka margir á nýliðnum ársfjórðungi og árið 2022. Hins vegar var áberandi fjölgun á kaupsamningum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en ríflega helmingi fleiri samningum var þinglýst í ár samanborið við fyrra ár.

Tæplega 400 fleiri kaupsamningar voru gerðir á höfuðborgarsvæðinu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við sama tíma 2023, þar sem yfir 100 fleiri samningar voru gerðir bæði í Reykjavík og Hafnarfirði. Hins vegar fjölgaði kaupsamningum hlutfallslega mest í Hafnarfirði á tímabilinu af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Garðabæ og Mosfellsbæ var eins hlutfallslega mikil fjölgun þeirra eða yfir 60 prósent milli ársfjórðunga í ár samanborið við 2023.

Met­fjöldi í sölu sér­býl­is­húsa í ná­grenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins

Á fyrsta ársfjórðungi seldust samtals 294 sérbýlishús í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eða um helmingur allra íbúðakaupa þar á tímabilinu, en slík hús voru 43 prósent af öllum seldum íbúðum þar á fyrsta ársfjórðungi 2023. Í marsmánuði seldust 140 sérbýlishús en aldrei áður hafa jafnmörg sérbýlishús selst á umræddu svæði í einum mánuði.

Á höfuðborgarsvæðinu sem og annars staðar á landsbyggðinni var hlutfallslega meira um kaup og sölu á íbúðum í fjölbýli samanborið við sérbýli sé fyrsti ársfjórðungur borinn saman við fyrsta ársfjórðung 2023.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS