4. desember 2024
26. nóvember 2024
Ábendingar um notkun fjöltengja og tíu ráð um rafmagnið
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Að gefnu tilefni vill HMS benda á að óvarleg og óhófleg notkun fjöltengja getur haft alvarlegar afleiðingar. Mörg dæmi eru um alvarlega bruna af þessum völdum og því vill HMS benda á eftirfarandi:
- Tengið ekki mörg tæki í sömu innstunguna með fjöltengjum
- Tengið aldrei tvö eða fleiri fjöltengi saman
- Tengið ekki mörg raftæki í sama fjöltengið
- Tengið ekki orkufrek rafmagnstæki í fjöltengi
- Reynið ekki að flytja rafmagn langar leiðir með framlengingarsnúrum
- Fáið löggiltan rafverktaka til að fjölga föstum tenglum frekar en að nota fjöltengi óhóflega
Nú fer jólahátíðin í hönd með aukinni notkun á allskyns rafbúnaði, til dæmis ljósakeðjum, það er því enn frekari ástæða til að fara varlega í notkun fjöltengja og framlengingarsnúra og taka ekki áhættu sem valdið getur fjölskyldunni tjóni.
Tíu ráð um rafmagnið:
- Sýnið varúð við eldamennsku og munið að slökkva á eldavélinni strax eftir notkun.
- Takið raftæki úr sambandi þegar þau eru ekki í notkun.
- Látið skipta strax um skemmdan rafbúnað.
- Hlaðið raftæki á óbrennanlegu undirlagi og ekki þegar allir eru sofandi eða fjarverandi.
- Fargið gömlum rafbúnaði sem farinn er að láta á sjá.
- Reynið ekki að gera það sem aðeins fagmenn ættu að gera.
- Prófið bilunarstrausmrofann (lekastraumsrofann) nokkrum sinnum á ári með því að þrýsta á prófhnappinn.
- Farið varlega í notkun fjöltengja.
- Varist að staðsetja ljós eða annan rafbúnað sem hitnar of nálægt brennanlegu efni.
- Gefið gaum að merkingum raftækja og notið eins og til er ætlast.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS