4. janúar 2024

83% landsmanna með virka brunavarnaáætlun

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í árslok 2023 voru 21 af 32 slökkviliðum með gilda brunavarnaáætlun og 83% landsmanna með virka brunavarnaáætlun

Þann 21. desember síðastliðinn var brunavarnaráætlun Brunavarna Stykkishólms undirrituð af slökkviliðsstjóra, sveitarstjóra sveitafélags Stykkishólms og nágrennis og forstjóra HMS.

Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar. Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun sem er öflugt verkfæri til að ná fram yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast við áhættur á sínu svæði. Brunavarnaáætlunin er nú aðgengileg á vefsíðu viðkomandi sveitarfélags en einnig eru hún birt á vef HMS, hér.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS