11. nóvember 2024
22. október 2024
83 heimsóknir til söluaðila raffanga frá júní til september á þessu ári
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin fylgist með rafföngum á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf, annast í umboði HMS, framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.
Á tímabilinu júní til september á þessu ári var farið í 83 heimsóknir til söluaðila raffanga, í þessum heimsóknum voru 2.449 rafföng „skimuð.“ Með skimun er átt við lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á viðkomandi sölustað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla kröfur, m.a. með því að yfirfara merkingar, þ.m.t. CE-merkingar.
Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem lýsingarbúnaður (755), raflagnabúnaður (710), spennugjafar og hleðslutæki (277) og ýmiss konar heimilistæki (272).
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS