8. maí 2026
11. maí 2026
73 heimsóknir til söluaðila raffanga frá febrúar til apríl 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin fylgist með rafföngum á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf, annast í umboði HMS, framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.
Á tímabilinu febrúar til apríl á þessu ári var farið í 73 heimsóknir til söluaðila raffanga, í þessum heimsóknum voru 2.070 rafföng „skimuð.“ Með skimun er átt við lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á viðkomandi sölustað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla kröfur, m.a. með því að yfirfara merkingar, þ.m.t. CE-merkingar.
Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem heimilistæki (1.215), lýsingarbúnaður (481) og raflagnabúnaður (643).
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




