20. júní 2025
19. maí 2025
67 heimsóknir til söluaðila raffanga frá febrúar til apríl á þessu ári
HMS annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin fylgist með rafföngum á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf, annast í umboði HMS, framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.
Á tímabilinu febrúar til apríl á þessu ári var farið í 67 heimsóknir til söluaðila raffanga, í þessum heimsóknum voru 1.659 rafföng „skimuð.“ Með skimun er átt við lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á viðkomandi sölustað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla kröfur, meðal annars með því að yfirfara merkingar, þ.m.t. CE-merkingar.
Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem raflagnabúnaður (401), lýsingarbúnaður (348), spennugjafar og hleðslutæki (249) og ýmiskonar heimilistæki (212).