28. júní 2024

61 heimsókn til söluaðila raffanga frá febrúar til maí á þessu ári

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin fylgist með rafföngum á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf., annast í umboði HMS, framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.

Á tímabilinu febrúar til maí á þessu ári var farið í 61 heimsókn til söluaðila raffanga, þar sem 1.669 rafföng voru „skimuð“. Með skimun er átt við lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á viðkomandi sölustað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla kröfur, m.a. með því að yfirfara merkingar, þ.m.t. CE-merkingar.

Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem ýmiss konar heimilistæki (358), lýsingarbúnaður (348), raflagnabúnaður (333), spennugjafar og hleðslutæki (166) og kæli-, frysti-, þvotta- og þurrkunarbúnaður til heimilis- og atvinnunota (113).

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS