4. nóvember 2022

60% slökkviliða á landinu með gilda brunavarnaáætlun

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Það er ánægjulegt að segja frá því að nú eru 60% slökkviliða í landinu með gilda brunavarnaáætlun. Á síðustu mánuðum hefur HMS unnið markvisst að því að styðja slökkviliðin og sveitarfélögin við gerð brunavarnaáætlana en í heildina eru 34 slökkvilið starfandi í landinu er starfa á vegum 64 sveitarfélaga.

Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði slökkviliða skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar. Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun sem er öflugt verkfæri til að ná fram yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast við áhættur á sínu svæði. Brunavarnaáætlun er aðgengileg á vefsíðu viðkomandi sveitarfélags en einnig eru þær birtar á vef HMS.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS