15. júlí 2025

53 umsóknir um hlutdeildarlán í júlí 2025 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Andvirði umsókna um hlutdeildarlán nam um 706 milljónum króna, en 333 milljónir króna eru til úthlutunar
  • 45 umsóknir að andvirði um 591,6 milljón króna var með samþykktu kauptilboði
  • Mikill meirihluti umsókna er vegna íbúða á höfuðborgarsvæðinu og flestar til kaupa á íbúðum í Hafnarfirði

Alls bárust HMS 53 umsóknir um hlutdeildarlán í júlí að andvirði um 706 milljóna króna, en 333 milljónir króna eru til úthlutunar fyrir tímabilið. HMS vinnur að yfirferð umsókna og stefnt er á að klára afgreiðslu þeirra fyrir lok júlí.

Í ljósi mikillar eftirspurnar umfram það fjármagn sem er til úthlutunar, er útlit fyrir að draga þurfi úr samþykktum umsóknum í samræmi við forgangsreglur þar sem talsverðar líkur eru á að upphæð samþykktra umsókna verði umfram þá fjárhæð sem er til úthlutunar að þessu sinni.

Meiri­hluti um­sókna til kaupa á íbúð­um á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Flestar umsóknir bárust vegna kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem alls var sótt um hlutdeildarlán að fjárhæð 513 milljónir króna vegna 36 íbúða. Þessar íbúðir eru flestar staðsettar í Hafnarfirði. Á vaxtarsvæðum eru flestar umsóknir vegna íbúða á Suðurnesjum, einkum í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ.

Um­sókn­ir með sam­þykkt kauptil­boð í for­gangi

Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og standa þau til boða fyrir fyrstu kaupendur og þau sem ekki hafa átt íbúð síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Í forgangi eru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð liggur fyrir, auk þess sem miða skal við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána veitt til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS