10. apríl 2026

457 nýjar lóðir staðfestar á fyrsta ársfjórðungi 2026 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

• Alls voru 457 nýjar lóðir staðfestar í fasteignaskrá HMS á fyrsta ársfjórðungi 2026 

• Flestar lóðir voru íbúðarhúsalóðir eða 122 talsins, en sumarbústaðalönd voru 111 

• Flestar skráningar voru í Grímsnes- og Grafningshreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi 

Alls voru 457 nýjar lóðir staðfestar í fasteignaskrá HMS á fyrsta ársfjórðungi 2026. Rétt er að hafa í huga að lóð er ekki jafngild íbúð, þar sem á einni lóð geta risið margar íbúðir eða engin þannig að tölurnar endurspegla ekki beint íbúðaframboð. Flestar lóðir voru íbúðarhúsalóðir eða alls 122 talsins. Auk þess voru skráð 111 sumarbústaðalönd og 79 viðskipta- og atvinnulóðir. Aðrar tegundir lóða voru 145 talsins. Flestar skráningar á tímabilinu voru í febrúar, þegar 168 lóðir voru staðfestar, samanborið við 148 í janúar og 141 í mars. 

Myndin hér að ofan sýnir fjölda nýskráðra lóða á fyrsta ársfjórðungi 2026 eftir mánuðum og meginflokkum. Í janúar voru flestar lóðir sumarbústaðalönd, en í febrúar var stofnað mest af viðskipta- og atvinnulóðum. Í mars fjölgaði íbúðarhúsalóðum á ný og urðu þær stærsti einstaki flokkur mánaðarins. 

Lóðir skráðar sem annað land eða einfaldlega lóð voru 88 talsins á fyrsta ársfjórðungi, en líklegt er að þessar lóðir breyti um gerð þegar fram líða stundir eða þegar mannvirki verða skráð á þær og verði þá skráðar sem atvinnu-, sumarhúsa- eða íbúðarlóðir. 

Mest umsvif í sunnlenskum sveitarfélögum 

Flestar lóðir voru skráðar í Grímsnes- og Grafningshreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þar sem 39 lóðir voru staðfestar í hvoru sveitarfélagi. Í Bláskógabyggð voru 38 nýjar lóðir staðfestar og í Sveitarfélaginu Árborg 31. Þar með voru þessi fjögur sveitarfélög með um þriðjung allra nýskráðra lóða á tímabilinu. 

Í Grímsnes- og Grafningshreppi voru flestar lóðir sumarbústaðalönd, alls 36 talsins. Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi vógu íbúðarhúsalóðir þyngst eða 16 talsins og í Sveitarfélaginu Árborg voru 19 íbúðarhúsalóðir staðfestar. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS