12. febrúar 2025

110 heimsóknir til söluaðila raffanga frá október 2024 til janúar á þessu ári

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS annast markaðseftirlit með rafföngum á Íslandi. Stofnunin fylgist með rafföngum á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum. Faggilt skoðunarstofa, BSI á Íslandi ehf, annast í umboði HMS, framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók stofnunarinnar.

Á tímabilinu október 2024 til janúar á þessu árivar farið í 110 heimsóknir til söluaðila raffanga, í þessum heimsóknum voru 2.538 rafföng „skimuð.“ Með skimun er átt við lauslega skoðun á sem flestum rafföngum á viðkomandi sölustað með það að markmiði að sigta út rafföng sem ekki uppfylla kröfur, m.a. með því að yfirfara merkingar, þ.m.t. CE-merkingar.

Af skimuðum rafföngum flokkuðust flest sem lýsingarbúnaður (715), raflagnabúnaður (489), ýmiskonar heimilistæki (354) og spennugjafar og hleðslutæki (315).

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS