13. maí 2025
4. janúar 2024
Hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta frá 1. janúar 2024
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Þann 21. desember síðastliðinn undirritaði Sigurður Ingi Jóhannesson, innviðaráðherra, reglugerð um breytingu á reglugerð um húsnæðisbætur. Þessi breyting snýr að hækkun frítekjumarka, en hækkunin tekur gildi frá og með 1. janúar 2024.
Eftir breytingarnar verða frítekjumörkin sem segir, miðað er við árstekjur:
Fjöldi heimilismanna | Frítekjumörk fyrir breytingar | Frítekjumörk eftir breytingar |
---|---|---|
1 | 5.388.983 kr. | 5.690.772 kr. |
2 | 7.127.364 kr. | 7.526.505 kr. |
3 | 8.344.232 kr. | 8.811.518 kr. |
4 eða fleiri | 9.038.585 kr. | 9.545.812 kr. |
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS