2023
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2023
Stórþörungar sem staðgengilsefni fyrir byggingariðnað
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Stórþörungar sem staðgengilsefni fyrir byggingariðnað
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Björn Jóhannsson
Stórþörungar sem staðgengilsefni fyrir byggingariðnað
Stórþörungar sem staðgengilsefni fyrir byggingariðnað
Lokaskýrsla fyrir Ask - mannvirkjarannsóknasjóð
Stórþörungar sem staðgengilsefni fyrir byggingariðnað
Verkefnið snerist um að sannreyna hvort innihaldsefni stórþörunga mætti nota sem staðgengilsefni fyrir múrlím og múrefni í byggingariðnaði.
Rannsóknir erlendis frá höfðu sýnt og sannað að alginat hefur margvíslega eiginleika sem gætu nýst í byggingarefni, svo sem samheldnieiginleika sem gera það að verkum að alginat hafði, samkvæmt fræðum, alla burði til að koma í stað múrlíms.
Verkefnið hverfðist um að sannreyna virkni alginats sem lífræns staðgengilsefnis fyrir múrlím og múrefni. Gerðar voru prófanir með mismunandi þéttni þess alginats sem unnið var úr stórþörungum (Laminaria hyperborea) og efnið unnið í þann þéttleika sem samsvaraði þéttleika múrlíms.
Fræðilegar rannsóknir höfðu verið gerðar á þessum eiginleikum alginats og var leitast við að framkvæma hagnýtar tilraunir til að innleiða alginat inn í íslenskan byggingariðnað í stað múrlíms.
Í fyrsta fasa var lögð áhersla á hvort hægt væri að virkja alginat í stórþörungum án þess að aðskilja það. Í rannsóknum og samstarfi við East London University kom í ljós að eitt besta efnið til þess að virkja eiginleika alginats var kalsíum, og í prófunum var kalsíumklóríðlausn bætt saman við sand og þaramjöl til að binda saman fúguefnið.



