2022
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2022
Rakaskemmdir og slagregn á höfuðborgarsvæðinu
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2022
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2022
Rakaskemmdir og slagregn á höfuðborgarsvæðinu
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Einar Sveinbjörnsson
Rakaskemmdir og slagregn á höfuðborgarsvæðinu
Rakaskemmdir og slagregn á höfuðborgarsvæðinu
Lokaskýrsla fyrir Ask - mannvirkjarannsóknasjóð
Rakaskemmdir og slagregn á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnið Rakaskemmdir og slagregn er grunnrannsókn sem miðar að því að fá fyllri upplýsingar um álag á byggingar af völdum veðurs, einkum úrkomu á vinds. Um er að ræða grunnrannsókn sem hófst 2022 og áætlað er að standi til ársins 2026. Hún snýr að þáttum sem lítt eða ekki hefur verið sinnt hér á landi. Eða hvernig veðurálag tengist leka í húsum. Í rannsókninni er komið fyrir mælibúnaði í nýjum byggingum á höfuðborgarsvæðinu þar sem slagregnsálag er einkum slagregnsálag er metið mikið. Þ.e. þar sem saman fer áköf úrkoma og hvössum vindi. Á höfuborgarsvæðinu er það SA-áttin sem veldur mestu slagregnsálagi í því skyni hafa verið valdar tvær nýbyggingar sem rísa efst í Urriðaholti í Garðabæ þar sem byggðin stendur hátt og er berskjölduð fyrir hvössum vindi á milli suðurs og austurs. Samstarf er við Búseta og Bjarg um að koma fyrir mælibúnaði á austurgöflum bygginga sem steyptar hafa verið upp á árinu á Maríugötu 5 (Bjarg) og Maríugötu 7 (Búseti) austast í Urriðaholti. Ætlunin er að mæla raka og vatnssöfnun í loftunarrými á milli klæðningar og einangrunar ásamt þrýstingi innan og utan klæðningar í hárri tíðni. Í stormum og miklu vindálagi getur mismunaþrýstingur verið ákjósanlegur mælikvarði á vindálags á klæðninguna.



