2021
Hringrásarhús Ísland

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2021

Hringrásarhús Ísland

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2021
Hringrásarhús Ísland

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2021

Hringrásarhús Ísland

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

VSÓ Ráðgjöf

Hringrásarhús Ísland

Hringrásarhús Ísland

Lokaskýrsla fyrir Ask - mannvirkjarannsóknasjóð

Hringrás­ar­hús Ís­land

Verkefnið fólst í að hanna og reisa Hringrásarhús á Íslandi. Hringrásarhúsið var reist úr forsteyptum byggingareiningum sem lágmörkuðu kolefnisspor og hámörkuðu auðlindanýtingu. Mikilvægt var að viðhalda virði byggingarefna og því var lögð áhersla á að tryggja að þau væru „upcycled“ en ekki „downcycled“.

Til að reisa Hringrásarhúsið var unnið að eftirfarandi verkþáttum:

A. Hannaðar voru forsteyptar einingar sem hægt var að taka í sundur.
B. Hannaðar voru tengingar sem hægt var að aftengja og sem uppfylltu íslenska þolhönnunarstaðla.
C. Skoðað og þróað var leysanlegt efni til að fylla í holrúm tenginga með hliðsjón af íslenskum þolhönnunarstöðlum og veðurskilyrðum.

Með verkefninu var dregið úr auðlindanotkun og líftími auðlinda lengdur með því að hanna byggingareiningar sem unnt var að taka í sundur til síðari endurnotkunar. Þannig var komið í veg fyrir að efni yrðu að úrgangi, en mögulegt var að draga úr byggingarúrgangi um allt að 90% með notkun aftengjanlegra eininga. Verkefnið var því liður í að ná markmiðum stjórnvalda um hringrásarhagkerfi og minnkun úrgangs.

Verkefnið hafði jafnframt möguleika á að breyta því hvernig byggingar voru hugsaðar, hannaðar og reistar á Íslandi og veita öðrum geirum innblástur í vöruþróun innan hringrásarhagkerfisins. Áhersla var lögð á að einingarnar litu út sem varanlegt mannvirki en ekki tímabundið, líkt og stundum hafði einkennt hefðbundin einingahús. Þá var hugað að fjölbreyttri klæðningu til að forðast einsleitt einingayfirbragð á útliti hússins.

Þátttakendur:

  • Arnhildur Pálmadóttir – s.ap Arkitektar
  • Halldór Gunnar Daðason – VSÓ Ráðgjöf
  • Márius Þór Jónasson – VSÓ Ráðgjöf
  • Pétur Hans Pétursson – BM Vallá
  • Sigríður Ósk Bjarnadóttir – Háskóli Íslands
  • Smári Valgarðsson – BM Vallá