2023
Hámörkun steinefna til ad lækka kolefnisspor venjulegar og vistvænni steypu — 2022 og 2023

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2023

Hámörkun steinefna til ad lækka kolefnisspor venjulegar og vistvænni steypu — 2022 og 2023

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Olafur Haralds Wallevik, Friad Nadir Hamad

Hámörkun steinefna til ad lækka kolefnisspor venjulegar og vistvænni steypu — 2022 og 2023

Hámörkun steinefna til ad lækka kolefnisspor venjulegar og vistvænni steypu — 2022 og 2023

Lokaskýrsla fyrir Ask - mannvirkjarannsóknasjóð

Hámörkun steinefna til ad lækka kolefnisspor venjulegar og vistvænni steypu — 2022 og 2023

Fyrra verkefni styrkt af Aski - mannvirkjarannsóknasjóði (2022)

Há­mörk­un stein­efna til ad lækka kolefn­is­spor venju­leg­ar og vist­vænni steypu — 2022 og 2023

Markmið var að hanna og þróa, bæði venjulega (C25/30) og sér í lagi umhverfisvænni steinsteypu þar sem kolefnissporið var lækkað verulega með breytingum á kröfum til steinefna, m.a. til að lágmarka innihald þeirra og breytileika í fríu vatni en minnka klínkerinnihald steypunnar að sama skapi, og þar með CO2e hennar. Með þessu móti myndaðist svigrúm til að hámarka gæði fylliefna fyrir hefðbundna framleiðslu og ekki síst fyrir vistvænni steinsteypu. Við þróun á vistvænni steypu var aðaláherslan lögð á að nota pozzolana í stað klinker/sements sem bindiefni (mikið pozzolan í stað klinkers leiddi til verulegrar lækkunar í byrjunarstyrk sem var bráðnauðsynlegur fyrir flesta verktaka). Hér var lögð áhersla á steinefnin til að minnka efjuþörf og þar með vatnsþörf, en minna vatn leiddi til hærri byrjunarstyrks.

Rannsóknarspurningin var þessi: Hversu mikið mátti minnka sementsmagn (og CO2e) í steinsteypu með breyttum áherslum í framleiðslu á steinefni fyrir steinsteypu, þá sérstaklega fínefnin.

Sá hluti verkefnisins sem var vel á veg kominn og stefnt var að klára í fyrsta fasa verkefnisins (2022) var að rannsaka áhrif breytinga á fínefni og sáldurferli steinefna á stöðugleika steypuframleiðslunnar og þar með möguleika á að minnka verulega klinker/sementsinnihaldið.

Framkvæmd framhaldsverkefnisins var í meginatriðum þessi:

  • Rannsaka áhrif breytinga á fínefni og á sáldurferli steinefna til að auka stöðugleika steypuframleiðslunnar og þar með möguleika á að minnka sementsinnihaldið
  • Áhrif fínmalaðs basaltsfínefnís/glers á stöðugleika steypuframleiðslu, byrjunarstyrk og frostþol lágkolvetna steinsteypu

Árangur var metinn sem hlutfallsleg minnkun í sementsinnihaldi og CO2e.

Takmark verkefnisins var að minnka til muna kolefnisspor steinsteypu í íslenskum byggingariðnaði.